Erindreki
Markmið með starfi erindreka er að efla starf skátafélaga í landinu og vinna að því að fjölga skátum í starfi með stuðningi við skátafélög ásamt því að vinna að og eftir atvikum leiða verkefni sem stuðla að aukinni þátttöku í skátastarfi.
Leitað er eftir að erindreki sýni frumkvæði og eigi auðvelt með að vinna með ungu fólki, sé framfærin, geti unnið sjálfstætt, skipulagt verkefni og stýrt verkefnum jafnt sem að vinna í hópastarfi.
Erindreki vinnur náið með viðburðastjóra og öðru starfsfólki BÍS í samráði við starfsráð að því að þróa og efla innra starf skátafélaga með þeim verkfærum sem þróuð hafa verið. Erindreki er mikið í beinum samskiptum við skátafélögin og sveitastjórnir/bæjarstjórnir eftir tilvikum – í samráði við framkvæmdastjóra BÍS.
Vinnutími er sveigjanlegur og gert er ráð fyrir því að erindreki sé einnig á ferðinni í heimsóknum til skátafélaga, forsvarsmanna sveitarfélaga og stuðningsaðila skátastarfs. Starfsstöð erindreka er í Skátamiðstöðinni í Hraunbæ 123 í Reykjavík en við hvetjum fólk á landsbyggðinni einnig að sækja um.
-
Veitir stuðning við uppbyggingu skátastarfs og fjölgun skáta í starfi
Stuðningur við skátastarf:
-
Ber ábyrgð á og styður við verkefni fyrir skátafélög í landinu sem tengjast skátaaðferðinni og dagskrármálum
-
Stuðningur við nýja foringja
-
Vinnur með öðrum að þróun dagskrár í skátastarfi. Fundir með dagskrárforingjum
-
Aðstoðar við fræðslumál og námskeiðahald í skátastarfi
-
Aðstoð og ráðgjöf við gerð á nýju dagskrárefni og dagskrárvef
- Setja inn upplýsingar á heimasíðu
- Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Reynsla af skipulagningu og stjórnun verkefna
-
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
-
Eftirfylgni með verkefnum
-
Góð mannleg samskipti og með góða, jákvæða og hvetjandi framkomu
-
Eiga auðvelt með að vinna með öðrum og virkja fólk
-
Nauðsynlegt að hafa mikla reynslu og brennandi áhuga á skátastarfi, með þekkingu á stöðu skátastarfs á Íslandi í dag og hafa verið virk/ur í starfi undanfarin ár
- Sveigjanlegur vinnutími
- Fjölskylduvæn stefna
- Heilsustyrkur
- Hvetjandi starfsumhverfi