Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Enskukennari í Árbæjarskóla frá hausti 2026

Enskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla næsta skólaár, haustið 2026. Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Enskukennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi. Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Menntunar- og hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
Sérmenntun í ensku er æskileg.
Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
Hæfni í samskiptum.
Faglegur metnaður.
Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
MJÖG góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur2. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar