Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viðfangsefni líkamlegur þroski og afkastageta

Doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viðfangsefni líkamlegur þroski og afkastageta.

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Doktorsneminn mun taka þátt í rannsóknarverkefni sem nýlega hlaut styrk, til þriggja ára, úr Rannsóknasjóði Íslands. Rannsóknarverkefnið ber heitið Langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna (e. Breaking Barriers: A Longitudinal Study of Mental Health, Social Well-Being, Physical Development and Performance in Female Youth Soccer Players). Viðfangsefni doktorsnemans verður líkamlegur þroski og afkastageta.

Rannsóknarverkefnið er hluti af stærra verkefni sem Háskóli Íslands leiðir og ber heitið Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi (SKORA) og er eitt fárra sem skoðar ítarlega samspil andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar heilsu, þroska og íþróttaiðkunar meðal stúlkna á kynþroskaskeiði.

Doktorsverkefnið felst í áframhaldandi langtímarannsókn þar sem þátttakendum, á aldursbilinu 12-16 ára, er fylgt eftir. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig líffræðilegur þroski, líkamssamsetning, líkamleg afkastageta og frammistaða þróast yfir unglingsárin og hvernig þessir þættir tengjast frammistöðu, meiðslahættu og brottfalli úr íþróttum. Sérstök áhersla verður lögð á að greina samspil beinþroska, líkamssamsetningar, svefns og meiðslatíðni og áhrif þeirra þátta á líkamlega frammistöðu. Rannsóknarverkefnið byggir bæði á huglægum og hlutlægum mælingum, þar á meðal frammistöðuprófum, líkamsmælingum, hreyfimælingum og svefnmælingum.

Rannsóknarverkefnið er unnið af teymi rannsakenda við Háskóla Íslands í samvinnu við erlendra fagaðila. Frá Háskóla Íslands: Dr. Rúna Stefánsdóttir, lektor og verkefnisstjóri, Dr. Vaka Rögnvaldsdóttir, dósent, Dr. Ársæll Már Arnarsson, prófessor, Dr. Erlingur Jóhannsson, prófessor og Dr. G. Sunna Gestsdóttir, dósent. Frá Western Norway University of Applied Science, Bergen, Noregi: Dr. Hilde Gundersen, dósent. Frá Colorado State University: Dr. Josiane Broussard, dósent. Leiðsagnarteymi doktorsnemans mynda Ársæll Már Arnarsson, prófessor, Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor og Vaka Rögnvaldsdóttir, dósent, í samstarfi við aðra í rannsóknarteyminu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í rannsóknavinnu í samstarfi við leiðbeinendur

  • Gagnasöfnun og gagnagreining

  • Skrif fræðigreina og miðlun á rannsóknaniðurstöðum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í íþróttafræði, íþróttalífeðlisfræði, hreyfivísindum (kinesiology), líffræði, lífeðlisfræði eða tengdum fræðasviðum

  • Þekking á líkamlegum mælingum og frammistöðuprófunum (t.d. styrkur, sprengikraftur, þol)

  • Reynsla af gagnasöfnun og vinnu með líkamleg eða lífeðlisfræðileg gögn

  • Þekking á megindlegum rannsóknaraðferðum og tölfræði er æskileg

  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

  • Reynsla af skrifum fræðilegs texta er kostur

  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt sem og í teymi

  • Lipurð í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af doktorsnámsnefnd sviðsins.

Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagatorg 1, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar