Dönskukennari í hlutastarf fram að áramótum
Dönskukennari óskast í afleysingar fram að áramótum. Um er að ræða 38% starf eða 10 kennslustundir á viku í 6.-10. bekk
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Guðrún Júlíusdóttir, skólastjóri í síma 699 8200 og á netfangið annagj@landakotsskoli.is
Landakotsskóli er sjálfstætt starfandi grunnskóli fyrir 1. til 10. bekk ásamt deild fimm ára barna auk frístundaheimilis. Í skólanum er íslenskudeild og alþjóðadeild. Við skólann stunda um 380 nemendur nám í tveimur deildum, annars vegar í íslenskri deild og hins vegar í alþjóðlegri deild þar sem námið fer fram á ensku. Um 40 kennarar starfa við skólann auk 30 annarra starfsmanna. Nemenda- og kennarahópur skólans er alþjóðlegur og í skólanum er góður starfsandi og afbragðsgott starfsfólk.
Landakotsskóli er sjálfseignarstofnun sem lýtur sérstakri stjórn. Markmið skólans er að veita nemendum framúrskarandi grunnskólamenntun. Í skólanum er metnaðarfullt nám í kjarnagreinum, öflugt listnám og fjölbreytt tungumálanám.
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við stjórnendur.
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og skapandi kennsluaðferðum.
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.