Regus
Regus
Regus

Dixon Lounge : Community Manager

Samfélagsstjóri Dixon Lounge gegnir mikilvægu hlutverki við að skapa jákvætt og afkastahvetjandi vinnuumhverfi fyrir viðskiptavini og hefur umsjón með daglegum rekstri vinnusvæða eða viðskiptamiðstöðva. Starfið er blanda af þjónustu við viðskiptavini, aðstöðustjórnun, sölu og tengslamyndun og að hlúa að kraftmiklu og aðlaðandi vinnuumhverfi. Samfélagsstjóri er hluti af aðstöðuteymi Regus sem í eru 8 starfsmenn á Íslandi og fara nýir starfsmenn í gegn um 2-3 mánaða starfsþjálfun Regus við upphaf starfs. Starfsfólk Regus á því góða möguleika á störfum innan samstæðunnar um allan heim. Opnunartímar Dixon Lounge eru eftirfarandi; 7-19 mánudaga-miðvikudaga, 7-23 fimmtudaga-laugardaga. Lokað er á sunnudögum.

Í boði eru mismunandi útfærsla af vinnutíma; fullt starf í dagvinnu, hlutastarf í kvöldvinnu eða vaktir sem dreifast á opnunartíma.

Á staðnum verður boðið upp á mikið úrval af kaffidrykkjum og yfir 8 mismunandi tegundir af brenndum kaffibaunum, morgunverður, lettir réttir milla mála og sætum bitum ,einstakur vinseðill með af berjavínum og bubblum og brenndum drykkjum og gott úrval af bjór.

Helstu verkefni: Samfélagsstjóri er fyrsti tengiliður við viðskiptavini, og tryggir þeim faglegt umhverfi.

- Byggir upp sterk tengsl við viðskiptavini, skilur þarfir þeirra og veitir lausnir til að auka upplifun þeirra.
- Skipuleggur og kynnir samfélagsviðburði, vinnustofur og tengslanetstarfsemi til að efla samfélag og samvinnu.
- Virkar sem brú á milli viðskiptavina, leysir vandamál, meðhöndlar ábendingar og viðheldur ánægju viðskiptavina. Hefur umsjón með daglegum rekstri viðskiptamiðstöðvarinnar og tryggir að aðstaða sé hrein, snyrtileg og vel viðhaldið.
- Framreiðir veitingar á veitingasvæði.
- Tryggir að fundarherbergi, skrifstofur og sameiginleg svæði séu tilbúin til notkunar.
- Tryggir í samstarfi við aðstöðuteymi, að viðgerðir, viðhald og endurbætur á aðstöðu séu framkvæmdar.
- Sinnir samskiptum við birgja, tryggir rekstur og sér til þess að þrif, upplýsingatækni og öryggi sé í lagi. Styður söluteymið með því að sýna og kynna væntanlegum viðskiptavinum þjónustuleiðir, og loka samningum.
- Er vakandi fyrir tækifærum til að selja virðisaukandi þjónustur, svo sem bókanir á fundarherbergjum, viðburðarýmum og viðbótarskrifstofuúrræðum.
- Fylgist með og tilkynnir um stöðu samninga, endurnýjun viðskiptavina og uppfærir tekjumarkmið fyrir miðstöðina. Annast reikningagerð og innheimtu.
- Heldur nákvæmar skrár yfir upplýsingar um viðskiptavini, samninga og bréfaskipti í viðskiptamannakerfi Regus.
- Tekur saman skýrslur um frammistöðu miðstöðvar, þar á meðal nýtingarhlutfall, sölutölur og endurgjöf viðskiptavina. Starfsfólk Regus hleypur í öll störf og vinnur saman að því að tryggja upplifun og góða þjónustu við gesti óháð staðsetningu.

Starfsstöðvar Regus í Reykjavík eru á Hafnartorgi, Kirkjusandi, Laugavegi og í Garðabæ. Á árinu 2025 munu tvær nýjar starfsstöðvar bætast við á Stór-Reykjavíkursvæðinu.

Um Regus

Við aðstoðum fyrirtæki við að finna réttu leiðina til að vinna. Regus er hluti af samfélagi alþjóðlegra og svæðisbundinna vinnusvæðamiðlara sem í sameiningu mynda IWG-netkerfið. Þeirra á meðal eru Spaces, HQ, Clube House, Signature by Regus og No18. Á þessum fjölbreytta vettvangi bjóðum við upp á óviðjafnanlega valkosti varðandi útlit, búnað, staðsetningar og byggingar og getum þannig leyft okkar viðskiptavinum að velja rétta vinnusvæðið fyrir þeirra þarfir hverju sinni. Þegar fyrirtæki velur Regus er það ekki bara að velja sér vinnusvæði, heldur einnig fólk. Sérþjálfað starfsfólk okkar er aðalsmerki Regus – og tryggir viðskiptavinum okkar vinsamlegt, faglegt og áreiðanlegt starfsumhverfi, á hverjum degi og á hverjum stað.

Helstu verkefni og ábyrgð

Njóta þess að vera í nice vinnu njóta þessa að gera alla daga skemmtilega

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstakling sem vill vinna og læra

Auglýsing birt26. september 2024
Umsóknarfrestur8. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaFramúrskarandi
ÍslenskaÍslenskaGrunnfærni
Staðsetning
Laugavegur 27, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.ViðburðastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)