

Director of Corporate Development (M&A) | Embla Medical
Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?
Fjármálateymi Embla Medical leitar að metnaðarfullum Director of Corporate Development (M&A). Director of Corporate Developement (M&A) ber ábyrgð á að leiða alþjóðlegt M&A ferli Embla Medical, sem felur í sér að meta og framkvæma samruna, yfirtökur og aðrar stefnumarkandi fjárfestingar sem styrkja langtíma samkeppnishæfni og auka virði félagsins. Starfið er áhrifarík leiðtogastaða fyrir reyndan aðila með sterkan fjármálabakgrunn, framúrskarandi samskiptahæfileika og yfirgripsmikla reynslu af fyrirtækjakaupum.
-
Halda utan um M&A pípu með yfirtöku- og fjárfestingartækifærum í samræmi við stefnu fyrirtækisins.
-
Stýra öllum stigum ferils fyrirtækjakaupa, þar á meðal virðismati, áreiðanleikakönnunum, samningaviðræðum og lokun viðskipta.
-
Útbúa fjármálalíkön, virðisútreikninga og fjárfestingartillögur sem styðja við ákvarðanatöku framkvæmdastjórnar.
-
Verkefnastýring þvert á deildir til að tryggja vandaða áreiðanleikakönnun og samþættingu eftir kaup.
-
Fylgjast með afkomu eftir kaup og tryggja eftirfylgni með markmiðum um virðisaukningu.
-
Háskólamenntun á sviði viðskipta, hagfræði, verkfræði eða skyldum greinum.
-
Reynsla af kaup og sölu fyrirtækja, fjárfestingabankastarfsemi eða stefnumótandi ráðgjöf.
-
Færni í fjármálalíkanagerð og virðismati, auk reynslu af að stýra M&A ferlum frá upphafi til enda.
-
Geta til að eiga í reiprennandi samskiptum á ensku er skilyrði.
-
Framúrskarandi samningatækni, kynningarhæfni og hæfni til að eiga samskipti á hæsta stjórnunarstigi.
-
Stefnumiðaður hugsunaraðili sem getur sameinað heildarsýn og kafað ofan í smáatriði.
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf
Enska
Íslenska


