Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Design Transfer Engineer

Langar þig að innleiða nýjar vörur í framleiðslu hjá Össuri?

Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem Design Transfer Engineer. Design Transfer teymið vinnur að því að innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu og færa vörur milli framleiðslustaða eða birgja. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í nánu samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra.

Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.

Kostur er áhugi á að vinna með, greina og túlka teikningar (e. technical drawings) og framleiðslutækni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu 

  • Hanna framleiðsluferli 

  • Styðja við þróun í þróunarferli nýrrar vöru  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc í verk-  eða tæknifræði  

  • Brennandi áhugi á framleiðslu og umbótum ferla  

  • Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean) er kostur  

  • Hæfni á sviði gagna- og kostnaðargreininga  

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu  

  • Metnaður og jákvæðni  

  • Mjög góð enskukunnátta  

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

  • Sveigjanleiki
Auglýsing birt6. janúar 2026
Umsóknarfrestur23. janúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.LeanPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar