
Fífusalir
Heilsuleikskólinn Fífusalir stendur við Salaveg 4 í Kópavogi og er sex deilda leikskóli fyrir 106 börn. Leikskólinn er fyrsta stig skólakerfisins og upphaf formlegrar menntunar einstaklinga. Við í Heilsuleikskólanum Fífusölum veitum öllum börnum tækifæri til að njóta bernsku sinnar. Áhersla er lögð á að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum til að styrkja sjálfsmynd þess. Í starfi leikskólans mynda hugtökin uppeldi, umönnun og menntun eina heild þar sem börnunum er sýnd virðing og umhyggja.
Kennarar Fífusala starfa eftir hugmyndafræði John Dewey og Berit Bae. Dewey leggur mikið upp úr lýðræðislegum kennsluaðferðum og uppgötvunarnám. Samkvæmt Bae eru samskipti okkar helsta verkfæri til náms, því er mikilvægt að kennarar og börn séu meðvituð um samskipti sín á milli og hlúi vel að þeim. Einkunnarorð Fífusala, virðing – uppgötvun – samvinna, eru sprottin af þessari hugmyndafræði. Þau eiga við bæði börn og kennara og marka allt daglegt starf.

Deildastjóri í Fífusölum
Heilsuleikskólinn Fífusalir er 6 deilda leikskóli í Salahverfi í Kópavogi. Þar starfa um 35 manns með 105 börnum. Leikskólinn er Heilsuleikskóli og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttir. Einnig er unnið eftir kenningum John Dewey og Berit Bae. Frábær starfsmannahópur, námsferð til Spánar vorið 2023.
Einkunnarorð skólans eru: Virðing - Uppgötvun - Samvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
Reynsla af vinnu með börnum
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði í starfi
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórnun og skipulagning deildar
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
Starfið felur í sér náið samstarfs við aðra stjórnendur skólans
Fríðindi í starfi
Vinnur 36 tíma vinnuviku, frír matur og frábær barna og starfsmannahópur.
Auglýsing birt17. maí 2022
Umsóknarfrestur30. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Salavegur 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniKennariRáðningarSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Grenivíkurskóli auglýsir eftir kennara
Grýtubakkahreppur

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Hofsstaðaaskóli - umsjónarkennari
Garðabær

Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla
Þjórsárskóli

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Heimilisfræði á miðstigi í Álfhólsskóla í hlutastarf
Álfhólsskóli

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð