

Deildarstjóri við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Ert þú að leita að spennandi tækifærum til að hafa áhrif á næstu kynslóð í skapandi og fjölbreyttu umhverfi? Við hjá Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla erum að leita að kraftmiklu fólki til að slást í hópinn okkar fyrir skólaárið 2025-2026.
Leitað er að deildarstjóra sem er reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 - 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðakjarna
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- Sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
















































