Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Deildarstjóri sölu á öryggislausnum

Öryggismiðstöðin leitar að öflugum deildarstjóra sölu á öryggislausnum. Ef þú hefur brennandi áhuga á að leiða söluteymi og hefur reynslu af stjórnun, sölu- og samskiptum við viðskiptavini, þá viljum við heyra frá þér!

Lýsing á starfi:

Starfið felst í að leiða söluteymi öryggislausna hjá Öryggismiðstöðinni. Teymið samanstendur af öryggisráðgjöfum sem sinna sölu á fjölbreyttum öryggislausnum og þjónustu til heimila og minni fyrirtækja og viðskiptastjórum sem leiða sölu og samskipti við stærstu fyrirtæki og stofnanir landsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða söluteymi öryggislausna með daglegri stjórnun 

  • Setning sölumarkmiða, árangursmælinga og eftirfylgni þeirra 

  • Stefnumótun sölu og þátttaka í áætlanagerð 

  • Öflun viðskiptasambanda og samskipti við lykilviðskiptavini  

  • Sölustuðningur og aðkoma að kynningu lausna fyrir núverandi og tilvonandi viðskiptavini 

  • Yfirumsjón með tilboðsgerð og stærri útboðum 

  • Yfirumsjón við samningagerð við viðskiptavini  

  • Viðhalda þjálfun, þekkingu og ánægju starfsfólks 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leiðtogahæfni og samskiptahæfileikar ásamt metnaði til þess að leiða öflugt sölustarf 

  • Reynsla af stjórnun og rekstri söluteyma er nauðsynleg 

  • Hæfni til þess að halda kynningar og setja fram upplýsingar á skýran hátt er nauðsynleg. 

  • Háskólamenntun eða menntun á sviði tækni-/raf-iðngreina eða sambærileg menntun er nauðsynleg. 

  • Skipulagshæfileikar og frumkvæði til að afla sér nýrrar þekkingar er nauðsynleg. 

  • Áhugi, forvitni og skilningur á tæknilegum lausnum og hugbúnaði er nauðsynlegur. 

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli. 

Auglýsing birt14. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar