
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur".

Deildarstjóri sérkennslu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Laus er staða deildarstjóra sérkennslu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar.
Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur".
Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast skipulag sérkennslu og stuðnings í samstarfi við skólastjórnendur.
- Sinna hlutverki tengiliðar samkvæmt lögum um farsæld barna.
- Leiðbeina og styðja annað starfsfólk við að mæta ólíkum þörfum nemenda.
- Þátttaka í skólaþróun.
- Um 40% starfsins felst í kennslu, sem getur hvort sem er verið sérkennsla eða kennsla í faggrein.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
- Menntun í sérkennslufræðum er æskileg.
- Reynsla af verkefnastjórn og kennslu ólíkra nemendahópa er æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðargata 56, 750 Fáskrúðsfjörður
Starfstegund
Hæfni
Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Ísat kennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Heilsuleikskólinn Urriðaból II

Stuðningur barna í leikskólastarfi
Leikskólinn Sjáland

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli