Deildarstjóri óskast í búsetukjarna í Mosfellsbæ
Mosfellsbær leitar að öflugum og framsæknum deildarstjóra til að koma inn í öflugt stjórnendateymi í búsetukjarna við Skálahlíð.
Í Skálahlíð búa einstaklingar með fötlun og er þeim veitt einstaklingsmiðuð þjónusta og áhersla lögð á að auka víðsýni þeirra og félagslega virkni. Starfsmenn vinna eftir þjónandi leiðsögn, hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu- og starfsáætlunum.
Deildarstjóri mun taka þátt í og leiða uppbyggingu á kjarnanum, þar á meðal koma að ráðningum starfsfólks og þjálfun þess, skipulagningu teymisvinnu, vaktaskýrslugerð og samskiptum við íbúa og aðstandendur. Deildarstjóri mun sjá um afleysingar fyrir forstöðumann.
Deildarstjóri vinnur eftir lögum og reglugerðum í þjónustu við fatlað fólk sem eiga við, sem og stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum og tryggir að allt starfsfólk vinni eftir sömu fyrirmælum.
Deildarstjóri leggur sig fram við að skapa öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukinna lífsgæða fyrir íbúana.
Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsfólks í daglegu lífi.
- Skipuleggja faglegt starf í samráði við forstöðumann
- Koma að starfsmannamálum heimilisins og vaktaskýrslugerð
- Leiða innra starf á heimilinu í samráði við forstöðumann
- Bera ábyrgð á að starfsmenn vinni eftir hugmyndafræði Mosfellsbæjar í málaflokki fatlaðs fólks, stuðli að valdeflingu íbúa og veiti þeim góða þjónustu í samræmi við þau lög, reglur og alþjóðlegar skuldbindingar sem um starfssemina gilda og kröfulýsing kjarnans segir til um
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda
- Reynsla af og metnaður fyrir starfi með fötluðu fólki er skilyrði
- Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
- Afburðarhæfni í samskiptum og leiðtogahæfni
- Reynsla af skipulagi faglegs starfs er kostur
- Reynsla af starfsmannahaldi er kostur
- Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun á skipulags- og vaktavinnuforritum svo sem Vinnustund, Vinnu, Memaxi og Outlook er æskileg
- Reynsla af bókhaldi er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, þjónandi leiðsagnar og valdeflingar
- Framúrskarandi íslenskukunnátta
- Krafa er gerð um bílpróf
- Hreint sakavottorð
Sundkort í sundlaugar Mosfellsbæjar eftir 4 mánaða starf.