Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Deildarstjóri launadeildar

Deildarstjóri launadeildar ber ábyrgð á allri launavinnslu sveitarfélagsins, stefnumótun í málaflokknum, leiðbeinir stjórnendum sveitarfélagsins og er yfirmaður starfsfólks launadeildar. Launadeild heyrir undir skrifstofu mannauðs- og kjaramála.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stýrir starfsemi launadeildar og starfsfólki, stefnumótun, þjálfun, skipulagningu verkefna, verkefnastýringu og þróun.

Ábyrgð á mánaðarlegri launavinnslu og öðrum þáttum sem snúa að launum og launavinnslu. Tryggir að laun og launatengd gjöld séu í samræmi við réttindi og skyldur kjarasamninga. 

Ber ábyrgð á uppfærslu og framkvæmd á ferlum, verklagsreglum og vinnulýsingum launadeildar.

Ber ábyrgð á innra eftirliti með launavinnslu og tryggir að framkvæmd sé í samræmi við lög, reglur og kjarasamninga, þvert á öll svið og starfsstaði sveitarfélagsins.

Túlkun kjarasamninga í samráði við mannauðsstjóra og eftirlit með framkvæmd þeirra þ.m.t. uppreikning launataflna og framsetningar í launakerfi

Greining, útreikningur og úrvinnsla á launa- og mannauðsgögnum þ.m.t. launagreiningar, uppgjör og samantektir til bókhalds og endurskoðenda. 

Ábyrgð á skilum launagagna, skilagreina, frádráttar og ársuppgjörs til viðeigandi stofnanna.

Ábyrgð á launaáætlun í samstarfi við mannauðsstjóra og aðra hlutaðeigandi s.s. stjórnendur og skrifstofu áhættu- og fjárstýringar.

Tekur þátt í þróun og innleiðingu launa- og mannauðskerfa og stuðlar að sjálfvirknivæðingu og stöðugum umbótum ferla.

Tekur þátt í uppbyggingu mælinga og mannauðstölfræði þ.m.t. launatölfræði.

Ráðgjöf, upplýsingagjöf og þjálfun stjórnenda hvað varðar launa-, mannauðs- og tímaskráningarkerfi. 

Önnur verkefni sem yfirmaður felur deildarstjóra..

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólapróf í viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegu námi.

Meistarapróf í mannauðsstjórnun eða sambærilegu.

Góð reynsla af stjórnun og starfsmannamálum.

Viðamikil þekking og reynsla af launavinnslu.

Mjög góð þekking á kjarasamningum sveitarfélaga.

Mjög góð samstarfs- og samskiptahæfni.

Hæfni og reynsla af að leiða breytingar og umbótaverkefni.

Framúrskarandi tölvukunnátta, sérstaklega af excel, Kjarna og SAP launavinnslukerfum. 

Mjög góð færni til tölfræðigreininga og greiningar gagna.     

Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.

Gott vald á íslensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Þekking á verklagsferlum og verkefnastjórnun er kostur.

Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu er kostur.

Hæfni og reynsla af þjálfun stjórnenda er kostur.

 

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing birt30. júlí 2026
Umsóknarfrestur7. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar