Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Áhersla er á traust og gagnsæi í samskiptum, jafnrétti, starfsánægju og heilbrigðan starfsanda. Gildi LRH eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Deildarstjóri í upplýsingatæknideild

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í stöðu deildarstjóra í upplýsingatæknideild. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða en upplýsingatæknideild heyrir undir fjármála- og upplýsingatæknisvið.

Upplýsingatæknideild sinnir þjónustu þvert á embættið, svo sem notendaþjónustu, innkaup og uppsetningu tölvubúnaðar auk þess sem deildin veitir almenna stjórnendaráðgjöf í upplýsingatæknimálum og tekur virkan þátt í ferlaumbótum hjá stofnuninni. Við leitum að deildarstjóra með fjölbreytta þekkingu sem gagnast í að tryggja farsæla þekkingarstjórnun við nýliðun í upplýsingatæknideild á næstu misserum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 430 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun upplýsingartæknideildar
Almenn kerfisstjórn ásamt vinnu við fyrirbyggjandi viðhald og bilanagreiningar
Sinnir almennri notendaþjónustu og er leiðandi í framþróun hennar
Vörslu og ábyrgðaraðili gagnagrunns aðgangaskerfa
Samskipti við þjónustuaðila og birgja
Þátttaka í umbótum á ferlum með tæknilausnum
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi svo sem tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærilegt nám eða reynsla
Þekking og reynsla af notendaþjónustu
Reynsla af stjórnun er kostur
Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum og staðbundnum lausnum Microsoft
Reynsla af kerfisrekstri í umhverfi sólahringsvakta er kostur
Þekking á beiðnakerfum og verklagi um skjölun nauðsynleg
Reynsla af umsjón með kerfum er halda utan um eignir og myndefni kostur
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Mjög góð þjónustulund, jákvætt og sveigjanlegt viðhorf
Hæfni í samskiptum og gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing stofnuð17. mars 2023
Umsóknarfrestur27. mars 2023
Starfstegund
Staðsetning
Hverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.