Deildarstjóri í leikskólann Kópahvol
Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir að ráða deildarstjóra
Kópahvoll er fjögurra deilda skóli með 74 börnum. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla með áherslu á leikinn. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga. Stuðst er við hugmyndafræðina "uppbygging sjálfsaga - uppeldi til ábyrgðar". Unnið er með snemtæk íhlutun, vináttuverkefni Barnaheilla og lubbi finnur málbeinið. Leikskólinn er Réttindaskóli UNICEF - þegar skóli gerist Réttindaskóli ákveður hann að skulbinda sig við að gera réttindi barna að raunveruleika eftir bestu getu. Vinna með Barnasáttmálann hefur bein áhrif á líf barna og er mikilvægt að sú vinna fljóti sem mest á milli þeirra uppeldisstofnanna sem barnið sækir. Í Kópahvoli er unnið með flæði og lögð áhersla á samstarf barna og kennara þvert á deildir.
Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað við Víghólinn í Kópavogi sem er friðað leik- og útivistarsvæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af stjórnun er kostur.
- Sjálfstæði, metnaður og skipulagshæfni.
- Góð íslenskukunnátta mjög mikilvæg.
- Almenn, góð tölvukunnátta.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Um fullt starf er að ræða eða eftir samkomulagi.
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars 2025
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði.
Nánari upplýsingar um leikskólann Kópahvol eru á: http://kopahvoll.kopavogur.is
Upplýsingar um starfið veitir Halla Ösp Hallsdóttir, leikskólastjóri og Stefanía Finnbogadóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma. 441 6500 eða hallaosp@kopavogur.is
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Góð íslensku kunnátta og ritfærni er skilyrði
- Góð samksiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt matskvarða um tungumálaviðmið
- Sundkort í sundlaugar Kópavogs
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
- Bætt starfsumhverfi barna og kennarar í leikskólum Kópavogs.