Selásskóli
Selásskóli
Selásskóli

Deildarstjóri í grunnskóla

Óskum eftir kennara í 50% stöðu deildarstjóra og 50 % kennslu í Selásskóla frá og með 1.ágúst 2026

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í Selásskóla í 50% stöðu og almenna kennslu í 50% frá og með 1. ágúst 2026. Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 180 nemendur og um 40 starfsmenn.

Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta.

Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi og upplýsingatækni. Ennfremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru. Síðustu ár hefur Selásskóli fengið viðurkenningar fyrir framsækið skólastarf sem leggur áherslu á STEM kennslu og sköpun.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is og á Facebooksíðu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans. Hlutverkið felur í sér að tryggja gæði kennslu, vellíðan nemenda og faglegt samstarf innan skólans. Deildarstjóri heyrir undir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
  • Deildarstjóri vinnur náið með kennurum og stoðþjónustu.
  • Stýrir faglegu starfi út frá stefnu skólans
  • Vinnur að öflugu samstarfi innan og utan skólasamfélagsins 
  • Starfar í anda laga um farsæld barna 
  • Alemenn kennsla á miðstigi
  • Önnur verkefni sem deildarstjóra kunna að vera falin
  • Leiða faglegt starf kennara á miðstigi
  • Skipuleggja og samræma kennslu, námsáætlanir og faglega þróun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af kennslu og deildarstjórastörfum í grunnskóla.
  • Góð leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp jákvætt og faglegt starfsumhverfi.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og fagleg dómgreind.
  • Þekking og reynsla af uppeldi til ábyrgðar, teymiskennslu og leiðsagnarnámi
  • Færni í notkun skóla- og upplýsingakerfa.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Hreint sakarvottorð
Fríðindi í starfi

sundkort heilsustyrkur

Auglýsing birt21. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
DanskaDanska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Selásbraut 109, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar