Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Deildarstjóri eldri deildar

Deildarstjóri eldri deildar Óskað er eftir deildarstjóra eldri deildar í 100% starfshlutfall með 50% stjórnunarumfangi til að byrja með. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær um að taka að sér stjórnunarlega ábyrgð, þátttöku í stjórnunarteymi og að vera faglegur leiðtogi. Deildarstjóri eldri deildar mun sinna deildarstjórn í 6.-8. árgangi næsta skólaár en þegar fram í sækir í 6. - 10. árgangi. Næsta skólaár mun deildarstjóri raðast skv. kjarasamningi sem deildarstjóri 3 með 50% kennsluskyldu.

Haustið 2025 hefst kennsla í 8. bekk skólans. Deildarstjóri eldri deildar mun leiða vinnu við að byggja upp unglingastigið í samstarfi við kennara og aðra stjórnendur. Mikilvægt er að hafa áhuga á skólaþróun.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í skipulagi innra starfs skólans með öðrum stjórnendum
  • Framfylgir skólanámskrá, samræmingu námsefnis og námsmats í samráði við kennara
  • Annast daglega stjórnun sinnar deildar og er faglegur ráðgjafi
  • Undirbýr deildarfundi sinnar deildar, stjórnar þeim og heldur fundargerðir
  • Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og velferð nemenda
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnskólakennararéttindi áskilin
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræði æskileg
  • Reynsla í stjórnun æskileg
  • Forystu- og stjórnunarhæfileikar
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á skólaþróun
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt20. mars 2025
Umsóknarfrestur2. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar