
Sveitarfélagið Strandabyggð
Lækjarbrekka á Hólmavík er samrekinn leik-grunn- og tónskóli með um 40 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Í leikskóladeildinni eru tveir hópar, eldri og yngri.
Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla og flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Fylgt er uppeldisstefnu jákvæðs aga. Skólinn er grænfánaskóli og stefnir að því að vera heilsueflandi skóli.
Strandabyggð skiptist í Hólmavík og dreifbýlið og er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, en sömuleiðis er margt spennandi fram undan. Þá má helst nefna fyrirhugaða hótelbyggingu, atvinnuuppbyggingu, nýtt íbúðarhverfi, unnið er að endurbótum á grunn- og leikskóla og svona mætti lengi telja.

Deildarstjóri á Lækjarbrekku – Hólmavík
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir deildarstjóra í leikskólann Lækjarbrekka á Hólmavík sem er samrekinn leik, -grunn- og tónskóli. Mikið og náið samstarf er á milli hinna samreknu skóla. Skólinn er með um 40 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Í leikskóladeildinni eru tveir hópar, eldri og yngri.
Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla og flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Fylgt er uppeldisstefnu jákvæðs aga. Skólinn er grænfánaskóli og stefnir að því að vera heilsueflandi skóli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Þátttaka í gerð skólanámskrár, ársáætlun, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum
- Stýra faglegu starfi deildarinnar
- Ábyrgð á og stjórnun deildarfunda og skipulagning undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem leikskólakennari eða önnur uppeldis- eða kennaramenntun
- Reynsla af starfi á leikskóla og stjórnun
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa með börnum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
- Leiðtogahæfni, jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt9. maí 2025
Umsóknarfrestur26. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri við leikskólann Hádegishöfða
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Viltu búa á fjölskylduheimili og hafa áhrif í lífi ungmenna?
Fjölskylduheimili Digranesvegi

Íþróttakennari í Varmárskóla
Varmárskóli

Deildarstjóri í Brákarborg
Leikskólinn Brákarborg

Hlíðarskóli: Þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, sérkennari
Akureyri

Náms-og starfsráðgjafi óskast í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Kennari og/eða atferlisfræðingur í námsver Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026
Auðarskóli

Stærðfræðikennari óskast skólaárið 2025-2026
Árbæjarskóli

Náms-og starfsráðgjafi í 20% starf
Ásgarðsskóli, skóli í skýjunum

Grunnskólakennari - Hólmavík
Sveitarfélagið Strandabyggð

Leikskólakennari óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir