Leikskólinn Langholt
Leikskólinn Langholt

Deildarstjóri

Deildarstjóri

Leikskólinn Langholt auglýsir eftir Deildarstjóra í 100% starf

Hæfniskröfur: Kennsluréttindi í Leikskóla

Langholt er staðsettur í Sólheimum í Reykjavík og er 9 deilda leikskóli með 174 börn

Leiðarljós leikskólans eru Virðing, gleði og vinátta

Áherslur okkar eru Læsi, Útinám og Íslenska sem annað mál.

Við erum að leita að deildarstjóra í teymið okkar. Við skólann starfar metnaðarfullur starfsmannahópur með fjölbreytta menntun og reynslu. Saman vinnum við að því markmiði að öllum börnum líði vel og þau nái að vaxa, dafna og njóta sín. Við Leggjum áherslu á góð og jákvæð samskipti. Þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að rækta hæfileika sína.

Við innleiðingu á Menntastefnu borgarinnar erum við að áhersla á Fagmennska og samstarf í innleiðingu á markvissari vinnu með Læsi.

Við virðum margbreytileika mannlífsins, vinnum markvisst með jafnrétti og að börnin verði sjálfstæðir og öruggir einstaklingar í lýðræðislegu samfélagi.

Starfslýsing:

Stjórnun og skipulagning:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.

Uppeldi og menntun:

  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.

Foreldrasamvinna:

  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra.
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga.

Annað:

  • Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
  • Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.

Auglýsing birt23. febrúar 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sólheimar 19, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar