Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Deildarstjórar óskast til starfa

Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?

Heilsuvernd óskar eftir að ráða deildarstjóra til starfa. Ráðið er í stöðurnar frá og með mars 2026.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og rekstur deildar
  • Starfsmannastjórnun og teymisvinna
  • Skipulagning og eftirfylgni með hjúkrun og umönnun
  • Samskipti við íbúa, aðstandendur og aðra fagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi hjúkrunarfræðings
  • Stjórnunarreynsla er æskileg
  • Áhugi og starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Færni í notkun upplýsingatækni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
Auglýsing birt16. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar