Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Deildarforseti lagadeildar

Deildarforseti hefur umsjón með námi og leiðir akademíska stefnumótun deildarinnar. Hann stýrir og ber ábyrgð á faglegum málefnum deildar, þ.m.t. starfsmannamálum og gæðamálum, og ber fjárhagslega ábyrgð innan ramma fjárhagsáætlunar. Leitað er að einstaklingi með faglegan styrk, skipulags- og stjórnunarhæfileika, reynslu á sviði skólamála og metnað og áhuga á að taka virkan þátt í frekari uppbyggingu og þróun fjarnáms í viðskiptalögfræði. Háskólinn á Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistaragráða í lögfræði.
Doktorspróf í lögfræði / meistaragráða í viðskiptafræði er kostur.
Þekking og reynsla úr háskólaumhverfi er mikilvæg.
Þekking og reynsla úr viðskiptalífinu er kostur.
Reynsla af stjórnun og/eða kennslu á háskólastigi er kostur.
Leiðtoga- og stjórnunarfærni.
Skipulagshæfileikar.
Samskipta- og samráðsfærni.
Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðir innra starf lagadeildar og frumkvæði í þróun deildar.
Skipuleggur og ber ábyrgð á mönnun deildar.
Ábyrgð á starfs- og verkáætlunum starfsmanna.
Utanumhald gæðastarfs deildar.
Samstarf við kennslusvið, fjármálasvið og önnur stoðsvið skólans.
Eftirlit með rannsóknarvirkni í deildinni.
Samskipti við laganema um akademísk málefni.
Inntaka nemenda í lögfræði með aðstoð kennslusviðs.
Þátttaka í nefndarstarfi utan og innan skólans eftir atvikum.
Deildarforseti situr í framkvæmdastjórn skólans.
Kennsla og rannsóknir samkvæmt samkomulagi við rektor.
Auglýsing birt27. nóvember 2020
Umsóknarfrestur15. desember 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bifröst skóli 134783, 311 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar