Vinaminni
Vinaminni er sérhæfð dagdvöl fyrir fólk með heilabilun. Dagdvöl sem þessi er mikilvæg til þess að virkja þann sem er með heilabilun, örva og hvetja til alls þess sem hann ræður við. Efla sjálfstraust og draga úr vanlíðan og vanmætti. En dagdvölin er ekki síður mikilvæg til að geta létt undir með ástvinum og aðstandendum og veita þeim ráðgjöf og stuðning til að takast á við þau vandamál sem upp kunna að koma.
Hlutverk starfsmannanna er að þjálfa, styðja og styrkja vitsmunalega og líkamlega hæfni einstaklingsins svo að hann geti viðhaldið sjálfstæði sínu eins lengi og kostur.
Mottó okkar er að öllum líði vel og hlakki til að koma til okkar á morgnana. Við leggjum okkur fram um að skapa rólegt og notalegt andrúmsloft í Vinaminni og hafa hlýju og umhyggju að leiðarljósi.
Dagdvölin Vinaminni óskar eftir leiðbeinanda
Dagdvölin Vinaminni óskar eftir starfsmanni í 94% starf í stöðu leiðbeinanda frá 1.október 2024. Vinaminni er sértæk dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun. Unnið er alla virka daga, frí um helgar og rauða daga.
Starfsmaður í dagdvöl starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun þjónustuþega
- Stýra virknistarfi þjónustuþega
- Veita þjónustuþegum félagsskap og stuðning
- Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliða eða félagsliða menntun kostur
- Reynsla af umönnun kostur
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Færni í mannlegum samskiptum og samvinnu
- Góð íslenskukunnátta
- Jákvæðni, þolinmæði, stundvísi og heiðarleiki áskilin
Auglýsing birt5. september 2024
Umsóknarfrestur26. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vallholt 19, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Starfsmaður í umönnun - Dagvaktir
Sóltún hjúkrunarheimili
Stuðningur við fötluð börn óskast í vetrarfrístund í Fjarðab
Fjarðabyggð
Starfsfólk í viðbragðsteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Heimastuðningur Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Dagdvöl og dagþjálfun Sólvangs
Sólvangur hjúkrunarheimili
Umönnun, 80-100% starf - Eir, Hamrar og Skjól
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Iðjuþjálfi - Hrafnista Laugarási
Hrafnista
Starfsmaður - Frístund
Seltjarnarnesbær
Félagsleg liðveisla / einstaklingsstuðningur
Seltjarnarnesbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær
Óska eftir eðalkonu á morgun/kvöld vaktir
NPA miðstöðin
Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf