Árblik
Almenn dagdvöl fyrir aldraða sem búa í heimahúsum og þurfa stuðning í þeim tilgangi að viðhalda færni og getu til að búa áfram heima. Áhersla er lögð á að styðja notendur dagþjálfunar til sjálfstæðis og sjálfræðis, ásamt því að efla færni og sjálfsbjargargetu heima og í dagþjálfun. Tekið er mið af getu hvers og eins þannig að hver og einn fái að njóta sín, finni fyrir öryggi og vellíðan og félagsleg einangrun rofin. Skemmtilegur vinnustaður með góðu andrúmslofti.
Dagdvölin Árblik óskar eftir aðstoðarmatráð
Dagdvölin Árblik óskar eftir aðstoðarmatráð í 60% starf. Árblik er almenn dagdvöl fyrir eldri borgara. Unnið er alla virka daga, frí um helgar og rauða daga. Aðstoðarmaður matráðs starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúa og framreiða hádegismat sem kemur í hús. Undirbúningur síðdegiskaffis.
- Matarinnkaup og pöntun vara eftir þörf.
- Þrífa og ganga frá að loknu starfi.
- Taka á móti hráefni, meðhöndla það til geymslu, vinna það fyrir matreiðslu og matreiða eftir þörfum á viðeigandi hátt samkvæmt leiðbeiningum.
- Pantanir og kaup á vörum í eldhús og þvottahús s.s. matvara og hreinsivörur í samráði við forstöðumann og yfirmann framleiðslueldhúss.
- Veita þjónustuþegum félagsskap og stuðning .
- Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús og þvottarhús sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsa æskileg.
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta.
- Jákvæðni, þolinmæði, stundvísi og heiðarleiki áskilin.
Auglýsing birt28. nóvember 2024
Umsóknarfrestur11. desember 2024
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 51, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Tímabundið starf í desember
Embla Medical | Össur
Matráður við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð
Afgreiðsla/Grill
Holtanesti
Gerðaskóli - mötuneyti
Skólamatur
Leikskólinn Stjörnubrekka - mötuneyti
Skólamatur
Gerðu hádegismatinn að upplifun - Hlutastarf í mötuneyti
Í-Mat
Vefjumeistari - Kitchen Staff
Vefjan Veitingar ehf.
Aðstoðarmaður í eldhús
Melabúðin
Sushi Kokkur !
UMAMI
Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar
Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf
Landspítali
Matráður og aðstoðarmanneskja í skólaeldhúsi
Waldorfskólinn Sólstafir