
Byggingarfulltrúi / Faglegur leiðtogi framkvæmda og eigna
Leitað er að kraftmiklum byggingarfulltrúa fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm til að halda utan um byggingarmál og verklegar framkvæmdir. Viðkomandi mun jafnframt sinna starfi byggingarfulltrúa hjá sveitarfélaginu Eyja- og Miklaholtshreppi í gegnum þjónustusamning við Sveitarfélagið Stykkishólm. Starf byggingarfulltrúa er lögbundið, sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Hlutverk hans er að veita embættinu faglega forystu og móta framtíðarstefnu innan ramma laga og reglugerða ásamt því að hafa eftirlit og eftirfylgni með að lögum um mannvirki og byggingarmál sé framfylgt. Byggingarfulltrúi heyrir undir bæjarstjóra Stykkishólms. Hjá sveitarfélögunum er lögð áhersla faglegt starf og þróun, öflugt samstarf og góða þjónustu.
Byggingarfulltrúi starfar náið með bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa og er næsti yfirmaður forstöðumanns eigna og verkefnastjóra framkvæmda og eigna skv. nýju skipulagi sveitarfélagsins. Starfsaðstaða er í Ráðhúsi Stykkishólms.
- Leiða faglega þróun og stefnumótun í byggingarmálum og verklegum framkvæmdum
- Umsjón með byggingarmálum og eftirlit með mannvirkjagerð, þ.m.t. útgáfa byggingarleyfa, áætlanagerð, eftirfylgni, mælingar og úttektir
- Ber ábyrgð á og leiðir undirbúning og eftirlit með verklegum framkvæmdum í sveitarfélaginu
- Ber ábyrgð á rekstri eignasjóðs og áhaldahúss
- Ber ábyrgð á að viðhaldi eigna, s.s. húseigna og hafnarmannvirkja sveitarfélagsins
- Umsjón með skráningu mannvirkja, úttekta, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki
- Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála
- Undirbúningur og eftirfylgni afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið hverju sinni og undir embættið heyra
- Háskólamenntun á sviði byggingarmála sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 eða getur aflað réttinda innan 6 mánaða
- Stjórnunarhæfileikar og leiðtogafærni
- Þekking og reynsla á sviði byggingarmála, úttektum og mælingum er æskileg
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Fagmennska, samviskusemi og einlægur áhugi á málefnasviðinu
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
Íslenska