Advania
Advania
Advania

Business Central Junior forritari

Advania leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingum sem hafa áhuga á forritun og vilja vinna með Microsoft Dynamics Business Central (NAV) og LS Retail.

Hjá okkur færðu að vinna með nýjustu lausnir Microsoft, þar á meðal Copilot, gervigreind og tækni sem er stöðugt að þróast.

Við bjóðum uppá eitt mest spennandi starfsumhverfi á Íslandi, með skemmtilegum hópi fólks sem í dag þjónustar viðskiptavini á Íslandi sem og á Norðurlöndum og í Bretlandi. Við leitum að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á umbreytingum fyrirtækja og vilja taka þátt í að móta nýja vegferð skýja- og viðskiptalausna.

Við lofum á móti frábæru vinnuumhverfi hjá fyrirtæki sem er að vaxa hratt og leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi þjónustu.

Við þurfum að bæta við okkar öfluga og skemmtilega hóp og leitum þess vegna að fólki sem hefur sömu ástríðu og við. Ef þú hefur reynslu á þessum sviðum, þá viljum við endilega heyra í þér, sama hvar þú býrð eða hvaða kröfur þú gerir til sveigjanlegs vinnuumhverfis. Við tökum tillit til þinna þarfa.

Starfið gæti hentað þér ef þú:

  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunar- eða hugbúnaðarverkfræði
  • Ert skipulögð/lagður, sýnir frumkvæði og ert sjálfstæð/ur í vinnubrögðum
  • Ert jákvæð/ur, býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hefur getu til að læra og tileinka þér nýjar lausnir og tækniframfarir
Auglýsing birt26. nóvember 2025
Umsóknarfrestur7. janúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austursíða 6, 603 Akureyri
Faxatorg, 550 Sauðárkrókur
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar