
Breiðagerðisskóli - Skólaritari 50% starf
Laust er til umsóknar starf ritara við Breiðagerðisskóla. Um er að ræða 50% starfshlutfall. Vinnutími frá 12:00 - 16:00. Leitast er eftir einstaklingi sem getur hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Í Breiðagerðisskóla eru um 350 nemendur í 1. til 7. bekk. Starfsmenn skólans eru um það bil 64 og eru þeir samhentur hópur sem hefur á undanförnum árum þróað skólann til þeirra starfshátta sem einkenna hann í dag. Grunnstefið í stefnu skólans er að lykillinn að góðri menntun og vellíðan barnanna sem við skólann nema leynist í samvinnu og samábyrgð starfsmanna skólans og annarra þeirra sem að starfsemi hans koma.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Umsjón með símsvörun og upplýsingagjöf.
- Skráning og utanumhald í upplýsingakerfum skólans.
- Almenn skrifstofustörf, bréfaskriftir og skjalavistun.
- Aðstoð við innkaup, afgreiðslu varnings og samskipti við birgja.
- Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við stjórnendur skólans.
- Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný hugbúnaðarkerfi fljótt.
- Mjög gott vald á íslensku, bæði í ræðu og riti.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og stundvísi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög um grunnskóla.
- Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.
Íslenska
Enska