

Bókhaldsfulltrúi í fjárhagsbókhaldi
ALP hf leitar að vandvirkum og talnaglöggum einstaklingi í starf bókhaldsfulltrúa. Unnið er í öflugu teymi sem ber alfarið ábyrgð á öllu reikningshaldi fyrir bílaleigurnar AVIS, BUDGET og PAYLESS á Íslandi og tengd félög. Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
- Tekjubókhald
- Afstemmingar
- Samskipti við starfsmenn og birgja
- Önnur tilfallandi bókhaldsstörf
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af almennum bókhaldsstörfum
- Kostur að hafa reynslu af Navision BC
- Reynsla af Office
- Reynsla í afstemmingum
- Frumkvæði og nákvæm vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Metnaður og áhugi til að vaxa í starfi
Bílaleiga Avis rekur rætur sínar allt aftur til ársins 1946, til borgarinnar Detroit í Michigan. Í dag er bílaleiga Avis heimsþekkt alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar í meira en 165 löndum. Avis á Íslandi hefur verið starfandi síðan 1987 og er í dag ein stærsta bílaleiga landsins.
Hjá Avis á Íslandi starfa um 100 manns um land allt með höfuðstöðvar í Reykjavík. Avis er fjölbreyttur og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu.
Fyrirtækið hlaut jafnlaunavottun 2021 og fjöldann allan af ferðaviðurkenningum.













