MEKÓ
MEKÓ stendur fyrir Menning í Kópavogi en í bæjarfélaginu er að finna öflugt menningarlíf. Í hjarta Kópavogs er að finna menningarstofnanir bæjarins; Salinn, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Bókasafn Kópavogs. Húsin starfa bæði sem sjálfstæðar ólíkar stofnanir en einnig sem heild með það að markmiði að efla samfélagið og auka aðgengi að listum, meðal annars að bjóða upp á fría viðburði sem styrktir eru af Lista- og menningarráði Kópavogs. MEKÓ er einnig í sterkum tengslum við sjálfstætt starfandi menningarlíf utan stofnananna sem taldar eru upp hér að ofan.
MEKÓ starfar samkvæmt menningarstefnu Kópavogsbæjar sem samanstendur af hlutverki, framtíðarsýn, gildum og yfirmarkmiðum sem eru fengin úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni. Menningarstefnan var unnin í samstarfi lista- og menningarráðs og starfsfólks menningarmála. Stefnan felur í sér þrjár stefnuáherslur.
1. Kópavogsbær leggur áherslu á að menningarstarf sé aðgengilegt öllum bæjarbúum.
2. Kópavogsbær stendur vörð um sérstöðu og faglegt starf menningarhúsa bæjarfélagsins.
3. Kópavogsbær leggur áherslu á víðtækt samstarf við bæjarbúa, svið
og deildir bæjarins og lista-, fræði-og vísindamenn úr ólíkum áttum.
Tímavinnustarfsmaður á Bókasafni Kópavogs
Bókasafn Kópavogs óskar eftir bókaverði í tímavinnu á aðalsafn. Starfið felst í afgreiðslu og þjónustu við lánþega safnsins.
Unnið er fast annan hvern laugardag, auk tilfallandi vakta í forföllum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við lánþega safnsins og upplýsingagjöf ásamt almenntum afgreiðslustörfum.
- Frágangur safnefnis til útláns og uppröðun safnefnis í hillu.
- Aðstoð á viðburðum.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf.
- Mikil þjónustulund, góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi, öguð og vönduð vinnubrögð og ábyrgðarkennd.
- Almenn grunnþekking á bókmenntum og gott vald á íslensku og ensku.
Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur15. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Hamraborg 6A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Helgarvinna og uppsetningar
Sölutraust
Þjónustufulltrúi
DHL Express Iceland ehf
Ráðgjafi á Akranesi
Sjóvá
Almennur starfsmaður / Móttaka - Hlutastarf
Arena
Afgreiðsla á bifreiðaverkstæði
Bílvogur bifreiðaverkstæði
Sala og afgreiðsla
Vatnsvirkinn ehf
Þjónustufulltrúi á skrifstofu Reykhólahrepps
Reykhólahreppur
Lyfja Blönduósi - Sala og Þjónusta
Lyfja
Öldrunar- og stuðningsþjónusta - Þjónustufulltrúi
Reykjanesbær
Sérfræðingur á sölu- og þjónustusviði
BSI á Íslandi ehf.
Jói Útherji - Starfsfólk í verslun óskast
Jói Útherji
Dagvinna í afgreiðslu (50%)
FÖNIX