Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Bókari til starfa á fjármála- og rekstrarsviði

Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili auglýsir eftir bókara til starfa á fjármála- og rekstrarsviði. Um 100% framtíðarstarf er að ræða og er starfið laust strax.

Starfsemin er umfangsmikil og eru verkefni fjölbreytt, áhugaverð og krefjandi. Öll bókhaldsvinna, milliuppgjör og ársuppgjör eru unnin innanhúss.

Um samrekin hjúkrunarheimili er að ræða og eru skrifstofur staðsettar í Hlíðarhúsum 7, Grafarvogi. Eir Öryggisíbúðir ehf., dótturfélag Eirar, er hluti af starfseminni en þar eru reknar yfir 200 öryggisíbúðir á þremur stöðum. Þá er einnig rekið framleiðslueldhús í Hlíðarhúsum 7.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Færsla og afstemmingar bókhalds.
  • Aðstoð við milli- og ársuppgjör.
  • Aðstoð í vinnu við sjálfvirknivæðingu ferla og nýtingu kerfa.
  • Kostnaðarskipting milli félaga.
  • Reikningagerð og innheimta.
  • Aðstoð við fjárhagsáætlanagerð.
  • Ýmis tilfallandi verkefni sem rúmast innan sviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. viðurkenndur bókari.
  • Góð Excel kunnátta.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Samviskusemi, nákvæmni og drifkraftur.
  • Reynsla af bókhaldsstörfum.
  • Góð samskiptafærni og hæfileiki til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Fríðindi í starfi
  • Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Lifandi vinnustað og skemmtilegt starfsumhverfi
  • Góða vinnuaðstöðu með nýjustu kerfunum

Um er að ræða framtíðarstarf.

Nánari upplýsingar veitir:

Ragnar Már Reynisson forstöðumaður á fjármálasviði, [email protected].Umsóknarfrestur er til og með 29. maí næstkomandi en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur29. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar