
Bókari
Framkvæmdafélagið Arnarhvoll óskar eftir að ráða samviskusaman og talnaglöggan einstakling í starf bókara. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Móttaka og skráning reikninga
- Umsjón samþykktarkerfis
- Almennt bókhald og afstemmingar
- Samskipti við birgja
- Þátttaka í uppgjörsvinnu
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun/reynsla sem nýtist í starfi
- Greiningarhæfni og góð almenn tölvukunnátta
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
- Reynsla af dk bókhaldskerfi er kostur
Um Arnarhvol:
Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. hóf starfsemi um mitt ár 2017. Arnarhvoll er alhliða verktakafyrirtæki sem vinnur að fjölbreyttum framkvæmdum og uppbyggingarverkefnum um allt land. Félagið ætlar sér að verða leiðandi á verktakamarkaði í framtíðinni og nýta til þess bestu tækni og framleiðsluaðferðir sem völ er á. Nánari upplýsingar má finna á www.arnarhvoll.is.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2023 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225.











