
Blómaval
Blómaval er stórmarkaður með allt fyrir blóma- og garðáhugafólk.
Hjá okkur eiga áhugamenn um ræktun að fá allt sem hugurinn girnist og faglega þjónustu garðyrkjufræðinga að auki.
Mikil áhersla er lögð á fagmennsku í afskornum blómum og hvers konar blómaskreytingum. Sömuleiðis er Blómaval þekkt fyrir að vera leiðandi verslun með alls konar heimilis- og gjafavörur.
Blómaval er í Skútuvogi, Grafarholti, Ísafirði, Akureyri, Selfossi, Vestmannaeyjum og Egilsstöðum.

Blómaval í Skútuvogi -Garðyrkjufræðingur
Við leitum að öflugum garðyrkjufræðingi með frjóa hugsun til þess að bætast í fjölbreyttan hóp starfsmanna í Blómavali í Skútuvogi.
Við leggjum ríka áherslu á jákvætt hugarfar og glaðlega framkomu og við vinnum saman að því alla daga að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Helstu verkefni eru umhirða og umsjón með fjölbreyttu úrvali plantna Blómvals, vöruframsetning og sala, ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, menntun í garðyrkjufræði er mikill kostur
- Góð reynsla af garðyrkju
- Starfsreynsla úr blómaverslun og af sölustörfum
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
- Gott vald á íslensku
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur27. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiJákvæðniSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi Noona Iceland
Noona Iceland

Starfsmaður Hobby & Sport í Kópavogi
Hobby & Sport ehf

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Viðskiptaráðgjafi – innleiðing og þjónusta
Elvo lausnir ehf.

Vaktstjóri - Maika'i Kringlan
MAIKA'I

Kirkjubæjarklaustur - verslunarstjóri
Vínbúðin

Ert þú hress og hefur gaman af sölu og samskiptum?
Happdrætti Háskóla Íslands

Gerðu bílaáhugann að starfi
Hekla

FRAMTÍÐARSTARF Í LAMBHAGA GRÓÐRARSTÖÐ Í REYKJAVÍK
Lambhagi ehf.