Bílstjóri Hveragerði & Selfoss - Sölufólk Sómi

Sómi ehf. leitar af öflugum einstakling til að sinna dreifingu og framstillingu á vörum Sóma og Þykkvabæjar í Hveragerði og á Selfossi. Mikil áhersla er lögð á góða hæfni í mannlegum samskiptum, íslensku- eða enskukunnáttu og samviskusemi.

Vinnutími er frá 7:00 – 13:00 alla virka daga. Um 75% starf er að ræða.

Verktakar koma til greina.

Helstu verkefni og ábyrgð

·      Dreifing á vörum Sóma og Þykkvabæjar

·      Uppröðun og framstillingar á vörum Sóma og Þykkvabæjar

·      Samskipti við starfsfólk verslana

·      Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

·      Starfsmaður þarf að hafa bíl til umráða.

·      Gild ökuréttindi

·      Góð íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði

·      Reynsla af akstri

·      Gerð er krafa um sterka öryggisvitund, góða ástundun og samviskusemi

·      Heiðarleiki og hæfni í mannlegum samskiptum

·      Gott heilsufar

·      Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Sóma

·      Kostur ef viðkomandi er reyklaus

Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur22. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar