Icelandia
Icelandia
Icelandia

Bílstjóri hópbifreða - sumarstarf

Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum bílstjórum með ríka öryggisvitund til starfa í sumar. Um er að ræða sumarstarf frá 1. maí og unnið er samkvæmt 2-2-3 vaktaskipulagi á 11 tíma vöktum.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur og þjónusta við farþega.
  • Umsjón og umhirða bifreiða.
  • Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Aukin ökuréttindi D og réttindi til aksturs í atvinnuskyni (95).
  • Gilt ökuritakort.
  • Reynsla af akstri hópferðabíla er æskileg.
  • Hreint sakavottorð.
  • Íslensku- og/eða enskukunnátta.
  • Geta starfað í fjölmenningarlegu umhverfi.
  • Rík öryggisvitund, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Snyrtimennska og stundvísi.
  • Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og skapandi verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Möguleikar á þróun í starfi.
Auglýsing birt20. febrúar 2025
Umsóknarfrestur3. apríl 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.D-95 réttindiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar