
Enterprise Rent-a-car
Enterprise er alþjóðleg bílaleiga sem starfar í 90 löndum með 9.900 sölustaði um allan heim og er stærsta bílaleiga í heimi.
Enterprise Rent-A-Car hóf starfsemi á Íslandi árið 2014 og hefur vaxið hratt undanfarin ár. Félagið er í dag með um 1.000 bíla í rekstri í langtíma- og skammtímaleigu á 2 útleigustöðvum í Reykjavík og Reykjanesbæ. Hjá Enterprise starfa fjölda starfsmanna sem leggja sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu.
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi starfar undir Icelandia sem er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki í skipulagningu og rekstri ferða um Ísland. Yfir 600 manns starfa hjá Icelandia.

Bílaþvottur á Enterprise bílaleigu
Enterprise bílaleiga leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi til starfa á bílaþvottastöð fyrirtækisins í Keflavík. Starfið felur í sér bílaþvott að innan og utan. Unnið er skv. 2-2-3 vaktafyrirkomulagi og er vinnutíminn frá 6:30-18:00.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Enterprise bílaleiga er hluti af Ferðaskrifstofu Icelandia sem er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þrif og yfirferð bílaleigubíla að innan og utan.
- Ferja bíla á milli staða.
- Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtækisins.
- Tilfallandi verkefni að beiðni yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gild ökuréttindi eru skilyrði.
- Reynsla af þrifum á bílum er æskileg.
- Hreint sakavottorð.
- Góð enskukunnátta.
- Sjálfstæð vinnubrögð og jákvætt viðmót.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Samviskusemi, vandvirkni og stundvísi.
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrk og sálfræðistyrk.
- Möguleika á þróun í starfi.
Auglýsing birt23. maí 2025
Umsóknarfrestur31. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Valkvætt
Staðsetning
Arnarvöllur 4, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiStundvísiVandvirkni
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar