
Blue Car Rental
Bílaleigan Blue Car Rental var stofnuð árið 2010 og er í dag með stærri bílaleigum landsins. Frá stofnun höfum við þjónustað yfir eina milljón ferðamenn sem hafa komið og ferðast hér um allt land á öruggum bíl.
Við erum þó miklu meira en bílaleiga. Hjá okkur starfa yfir 100 einstaklingar í mjög fjölbreyttum störfum. Virði Blue Car Rental liggur í mannauðnum þar sem þekking og færni starfsmanna nær yfir afar mörg svið og endurspeglar ferðalag bílsins frá því hann er keyptur, leigður, lagaður og loks seldur.
Við vitum hvað þarf til að ná framúrskarandi árangri og sú vinna stoppar aldrei. Samkeppnin á bílaleigumarkaði er mikil og það kallar á orku, sveigjanleika og nýstárlegar hugsanir að leiða á okkar markaði. All flestir samkeppnisaðilar eru að selja sama bílaleigubílinn og því reynir svo sannarlega á að skera sig úr fjöldanum. Það gerum við með stöðugri nýsköpun og þróun á okkar lausnum.
Við trúum því að við séum með bestu bílaleiguþjónustu sem í boði er, ekki bara á Íslandi heldur í heimi. Við erum leiðandi með því að velta sífellt fyrir okkur breyttum þörfum viðskiptavinarins sem fara stöðugt vaxandi. Við einsetjum okkur að einfalda allt bílaleigu ferlið bæði fyrir viðskiptavini sem og starfsfólk. Einungis þannig næst staðfærsla á gæðunum í okkar þjónustu.
Að vera framúrskarandi að öllu leyti er það sem við stefnum á. Áreiðanleiki og traust er það sem við stöndum fyrir og við tryggjum það með stöðugum umbótum á okkar starfsemi, nýsköpun í þjónustu og umfram allt, frábæru starfsfólki.
Gildi Blue Car Rental eru: Sveigjanleiki, Umhyggjusemi, Heiðarleiki og Framsækni. Þessi gildi leiða okkur í gegnum allar ákvarðanir, hönnun og þjónustu.
Blue Car Rental er samfélagslega ábyrgt félag. Við trúum því að hlutverk okkar nái langt umfram vegi landsins og höfum við í mörg ár verið virkur þátttakandi í verkefnum sem bæta samfélagið okkar.

Bílaþrif og standsetning bíla/Car washing and car road- ready
Tímabundin ráðning. Leitum að heilsuhraustum og dugmiklum einstaklingum í bílaþvott og standsetningu bíla á starfsstöð okkar í Keflavík.
Einstaklingur þarf að geta hafið störf strax og unnið út október.
Vinnutími:07:00-19:00 á 2-2-3 vaktakerfi.
Auglýsing birt25. ágúst 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Blikavöllur 3, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Bílstjóri óskast
Lambhagi ehf.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin ehf

Cleaning of vehicles
BusTravel Iceland ehf.

Umsjónarmaður á verkstæði húsbílaleigu / Motorhome rental fleet assistant.
Rent Easy Iceland

Starfsfólk á hjólbarðaverkstæði í Reykjavík -
Dekkjahöllin ehf

Bílaþvottur / Carwash
Go Leiga