
N1
Við erum til staðar fyrir fólk og fyrirtæki um allt land þegar þarf að stoppa, fylla á, hlaða, grípa nauðsynjar, fá sér bita eða redda bílnum. Á stöðvunum okkar mætast eldsneyti og raforka, rekstrarvörur, veitingar og ýmis praktísk þjónusta sem nýtist í dagsins amstri.
Við leggjum áherslu á að hafa hlutina einfalda. Gott aðgengi, skýr þjónusta og vöruúrval sem mætir ólíkum þörfum, hvort sem þú ert á langferð, á leið í vinnu eða með rekstur. Með N1 kortinu safnarðu punktum sem nýtast sem krónur í verslunum okkar um land allt.
Vel staðsett stöðvanet, öflug bílaþjónusta, til dæmis dekkja- og smurþjónusta, og traust fyrirtækjaþjónusta gera okkur að sterkri heild og föstum hluta af daglegu lífi á Íslandi.

Bílaþjónusta N1 leitar að liðsstyrk
Við leitum að krafmiklum og áreiðanlegum liðsfélaga með reynslu af bílaviðgerðum og smurþjónustu á þjónustuverkstæði okkar við Flugvelli 27 í Reykjanesbæ.
Helstu verkefni
- Minni bílaviðgerðir, svo sem á bremsum, dempurum o.fl.
- Smurþjónusta
- Mat á ástandi bifreiða og greining bilana
- Hjólbarðaþjónusta, þar á meðal umfelgun, dekkjaskipti og viðgerðir
Hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi, svo sem bílaviðgerðum og smurþjónustu
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Gild ökuréttindi – Meirapróf kostur
- Þjónustulipurð og góð samskiptahæfni
- Íslensku eða enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að velferðarþjónustu N1
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Nánari upplýsingar veitir Úlfar Pálsson – [email protected] verkefnastjóri
Umsóknarfrestur er til og með 7.apríl 2026
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Grænásbraut 552, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í pökkun
Lýsi

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Uppsetningar
Titus

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Reynslumikill starfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Bílrúðuísetningar
Bílrúðan ehf

Bifvélavirki / handlaginn einstaklingur
Katlatrack ehf

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Verkstæði
EAK ehf.

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Bifvélavirki, vélvirki
Aflvélar ehf.