Aðalskoðun hf.
Aðalskoðun hf.
Aðalskoðun hf.

Bifvélavirki, skoðunarmaður, Selfoss

Aðalskoðun hf. óskar eftir að ráða bifvélavirkja til starfa við skoðun ökutækja á Selfossi. Við erum að leita að starfsmanni með framtíðarstarf í huga. Umsóknarfrestur er til 30. júní. Sveinspróf í eftirfarandi greinum er skilyrði ásamt því að tala og rita á íslensku, bifvélavirkjun, vélvirkjun eða bifreiðasmíði.

Aðalskoðun leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við skoðun ökutækja og ríka þjónustulund, en í starfinu felast eðlilega mikil samskipti við viðskiptavini.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Karl Ársælsson stöðvarstjóri á Selfossi.

Umsóknir sendist til Gunnars Karls á netfangið [email protected] og [email protected]. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað að loknum umsóknarfresti.

Aðalskoðun hf. er faggild óháð skoðunarstofa sem starfrækir í dag fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt skoðunarstöð í Reykjanesbæ og Selfossi. Aðalskoðun sinnir einnig skoðunum í Grundarfirði, Ólafsfirði, Reyðarfirði og Kópaskeri.

Auglýsing birt10. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Eyravegur 51, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.BifreiðasmíðiPathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Vélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar