Cozy Campers Iceland
Cozy Campers Iceland

Bifvélavirki óskast

Viltu vinna í skemmtilegu og samheldnu umhverfi með spennandi áskoranir og framúrskarandi vinnuaðstöðu? Þá erum við að leita að þér!

Cozy Campers, eitt af leiðandi fyrirtækjum í útleigu camper bíla á Íslandi, óskar eftir metnaðarfullum bifvélavirkja með góða reynslu og áhuga á að takast á við fjölbreytt verkefni. Hjá okkur er lögð rík áhersla á góðan teymisanda og vellíðan starfsmanna, ásamt því að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. Ef þú ert bifvélavirki sem leitar að spennandi starfi í frábæru starfsumhverfi, þá er þetta tækifærið fyrir þig!

Hvað felst í starfinu?

  • Viðhald og viðgerðir á camperum, m.a. tímareimaskipti, bremsuviðgerðir og hjólabúnaður.
  • Olíu- og dekkjaskipti.
  • Bilanagreining með bílatölvu.
  • Umsjón með varahlutalager.
  • Skráning viðhalds og viðgerða í flotastýringarkerfi.

Hverju óskum við eftir?

  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla í faginu.
  • Góð þekking á bilanagreiningu með bílatölvu.
  • Bílpróf er skilyrði.
  • Hæfni í ensku bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð ásamt færni til að vinna í teymi.
  • Stundvísi og áræðni.

Hvað bjóðum við?

  • Samkeppnishæf laun og góð starfskjör fyrir réttan aðila.
  • Sérútbúin vinnuaðstaða, eingöngu fyrir viðhald og viðgerðir.
  • Gott starfsumhverfi með vinnu mánudaga til föstudaga.

Ef þú ert bifvélavirki með brennandi áhuga á faginu og vilt vera hluti af skemmtilegu fyrirtæki með fjölbreytt og krefjandi verkefni, sendu okkur umsókn!

Auglýsing birt18. október 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Kársnesbraut 106, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.BremsuviðgerðirPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.HjólastillingPathCreated with Sketch.HjólbarðaþjónustaPathCreated with Sketch.Smurþjónusta
Starfsgreinar
Starfsmerkingar