
Grillmarkaðurinn ehf.
Grillmarkaðurinn er veitingarstaður með áherslu á íslenska matargerð og stíl. Við munum leitast við að nota hráefni beint frá bændum landsins svo að hráefnið verður tipp topp hverju sinni. Matseðillinn er byggður upp á því að matreiða frábært kjöt, sjávarfang, fisk og gæða árstíðarbundið hráefni á spennandi hátt. Eldur, reykur, viður og kol hjálpa okkur að ná fram djúpri, ríkri og jarðlegri tilfinningu í okkar brögð sem mun svo jafnast út með ferskleika. Þannig búum við til upplifun bæði úr íslenskum hefðum og nútíma matargerð. Kokkarnir á Grillmarkaðnum eru stoltir af grillinu sem þeir hafa látið sérsmíða fyrir sig. Grillið er þannig upp byggt að það þolir svakalega mikinn hita. Kolin hitna upp í 1200 gráður og með því verður maturinn stökkur að utan en safaríkur að innan.

Barþjónn hlutastarf / Bartender part time
Við erum að leitast eftir hressum og lífsglöðum kokteilbarþjónum til að ganga til liðs við barteimið okkar í kvöld og helgarvinnu á 15 daga 2-2-3 vöktum
Reynsla nauðsynleg. Ef þú ert metnaðarfullur og ófeiminn einstaklingur og langar að vinna á líflegum og skemmtilegum veitingarstað þar sem kokteilar fljóta um húsið í geggjaðari stemningu þá erum við að leita af þér !
We are currently looking for skilled and great minded bartenders to join our team ! Part time job for evening shifts. 15 days work on 2-2-3 system. Optional for more shifts. Experience is required
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BarþjónustaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)





