Barnaskólinn í Hafnarfirði - forfallakennsla í 1.-4. bekk
Laus er tímabundin 100% staða forfallakennara á yngsta stigi grunnskóla (1.-4. bekkur) við Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði frá 1. janúar 2025 eða fyrr. Staðan er auglýst vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða forfallakennslu í litlum hópum í 1.-4. bekk og þarf viðkomandi að vera sveigjanlegur og tilbúinn að taka að sér fjölbreytta kennslu. Föst viðvera grunnskólakennara er frá kl. 8:00-13:45 alla virka daga utan fundar frá kl. 14:00-15:30 einn dag í viku. Hjallastefnan er með kjarasamning við FG með ákvæði um aukna viðveru með börnum og fyrir það eru greiddir auka launaflokkar.
Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kennara sem er tilbúinn að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi því ekki er um bókastýrða kennslu að ræða.
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
- Forfallakennsla í 1.-4. bekk
- Starfa eftir stefnu skólans, samkvæmt aðalnámskrá, skólanámskrá og kynjanámskrá Hjallastefnunnar
- Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi
- Reynsla og þekking á starfi með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Jákvæðni
- Frítt fæði á vinnutíma