Súpufélagid ehf.
Súpufélagid ehf.
Súpufélagid ehf.

Bakari óskast í spennandi nýtt bakarí / Baker needed for a new exciting bakery

Fyrsta bakaríið opnar í Vík - Símstöðin bakarí. Við leitum að hæfileikaríkum, drífandi og áreiðanlegum bakara. Spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að hjálpa til við að móta upphaf og stefnu bakarísins. Vík í Mýrdal er lítið en lifandi þorp tæpa 3 tíma keyrslu frá Reykjavík, umkringt náttúruperlum og þar sem öll nauðsynleg þjónusta er í göngufæri.

/

The first bakery opens in Vík - Símstöðin bakery. We are looking for a talented, driven and reliable baker. Exciting opportunity for the right idnividual to help develop the vision and future of the bakery. Vík is a small but lively village in less than 3 hour driving distance from Reykjavík, surrounded by breathtaking nature and with all basic services within walking distance.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bakstur á brauði, bakkelsi og öðrum vörum samkvæmt uppskriftum og gæðastöðlum.
  • Undirbúningur hráefna og deiga.
  • Eftirlit með gæðum, ferskleika og framsetningu vara.
  • Þátttaka í þróun nýrra vara og uppskrifta.
  • Skipulagning framleiðslu til að tryggja nægilegt framboð.
  • Viðhald hreinlætis í vinnuaðstöðu og meðhöndlun búnaðar.
  • Fylgja reglum um matvælaöryggi og vinnuvernd.
  • Samvinna við aðra starfsmenn til að tryggja jákvætt vinnuumhverfi, góða þjónustu og skilvirkan rekstur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bakaraiðn eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af bakstri í bakaríi eða matvælaframleiðslu.
  • Góð þekking á gerdeigi, súrdeigi, brauðum og bakkelsi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Vandvirkni og rík gæðavitund.
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
  • Hæfni til að vinna undir álagi og halda góðum vinnuhraða.
  • Áreiðanleiki, stundvísi og jákvætt viðmót.
  • Þekking á hreinlætis- og matvælaöryggisreglum.
  • Vilji til að læra, þróa nýjar vörur og taka þátt í uppbyggingu bakarísins.
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
  • Enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæf laun og árangurstengdar greiðslur ef rekstur gengur vel.
  • Herbergi til leigu í starfsmannahúsi eða aðstoð við að finna hentugt húsnæði, ásamt niðurgreiddri leigu.
  • Raunverulegt tækifæri til að móta nýtt bakarí frá grunni.
  • Sjálfstæði í starfi og mikil áhrif á vöruþróun og gæðastefnu.
  • Tækifæri til starfsþróunar samhliða vexti fyrirtækisins.
Auglýsing birt3. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurvegur 17, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Bakaraiðn
Starfsgreinar
Starfsmerkingar