
Bakarameistarinn
Bakarameistarinn hefur verið í fararbroddi í sinni grein allt frá því hjónin Sigþór Sigurjónsson bakarameistari og Sigrún Stefánsdóttir stofnuðu fyrirtækið í janúar árið 1977. Opnun Bakarameistarans í Suðurveri olli svo að segja straumhvörfum á sínu sviði, enda höfðu Reykvíkingar ekki áður kynnst viðlíka þjónustu og vöruúrvali eins og Bakarameistarinn varð strax kunnur fyrir. Markmið fyrirtækisins voru snemma mjög skýr; að vera í fararbroddi með nýjungar og öfluga vöruþróun, bjóða upp á mikið vöruúrval, hraða og örugga þjónustu, góða fagmenn í bakstrinum og síðast en ekki síst að nota einungis gæðahráefni til að búa til úrvalsvöru. Þessum atriðum hefur ávallt verið haldið til haga í rekstrinum.
Bakarameistarinn starfrækir nú 9 kaffihús á höfuðborgarsvæðinu og enda þótt starfsfólki hafi fjölgað úr 20 árið 1977 í rösklega 140 manns hafa markmið hans ekkert breyst og eru alltaf jafn skýr; við þjónum þér!

Bakari - fullt starf
Vegna aukinna verkefna leitar Bakarameistarinn ehf. af alhliða og metnaðarfullum bakara.
Hjá okkur starfar mjög samheldin hópur starfsmanna í metnaðarfullu og rótgrónu fyrirtæki, kostur ef umsækjandi getur hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur bakara:
- Sveinspróf í bakaraiðn
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Sveigjanleiki og góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni.
- Áreiðanleiki og stundvísi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Bakstur
Menntunar- og hæfniskröfur
Sveinspróf
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

