Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Baðvörður

Íþróttahúsið Baula v/ Sunnulækjarskóla auglýsir eftir baðverði í kvennaklefa í afleysingar með möguleika á áframhaldandi ráðningu í vaktavinnu næstkomandi haust. Afleysingastarfið er unnið á tímavinnusamning útfrá vaktaskipulagi, en starfið sem um ræðir á næstkomandi haustönn er hlutastarf á vöktum.

Baðvörður veitir þjónustu svo gestir íþróttahússins finni fyrir öryggi og ánægju. Starfað er eftir lögum og reglum sem hafa áhrif á öryggi og velferð þjónustuþega og fylgir íþrótta- og tómstundastefnu Sveitarfélagsins Árborgar.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka á móti gestum, veita upplýsingar, leiðbeina og hafa eftirlit með því sem á við út frá ólíkum þörfum gesta (nemendum, iðkendum, þjálfurum, kennurum og öðrum gestum)
  • Fylgja eftir umgengnisreglum húsnæðis og sinna almennri húsvörslu
  • Gæsla í búningsklefum
  • Annast ræstingu, eftir þrifaáætlun
  • Umsjón með húsnæði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Rík þjónustulund og reynsla af þjónustustarfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af samskiptum við börn og unglinga
  • Góð viðbragðshæfni við ólíkar aðstæður
Auglýsing birt4. apríl 2025
Umsóknarfrestur21. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Norðurhólar 3, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar