
Eskja Vinnsla ehf.
Eskja er fjölskyldufyrirtæki á Eskifirði sem hefur verið leiðandi afl í íslenskum sjávarútvegi síðustu 70 árin. Fyrirtækið hét áður Hraðfrystihús Eskifjarðar og var stofnað 8. maí 1944 í því skyni að skjóta styrkum stoðum undir fábreytilegt atvinnulíf bæjarins. Stofnendur félagsins voru um þrjú hundruð einstaklingar og fyrirtæki á staðnum. Alla tíð síðan hefur Eskja verið kjölfestan í atvinnulífi Eskifjarðar. Félagið hefur vaxið og dafnað í áranna rás og starfsmenn fyrirtækisins eru í dag um 100 talsins. Markmið okkar er að standa í fremstu röð, nota ávallt bestu framleiðslutækni sem völ er á og framleiða hágæðavörur úr íslenskum fiski fyrir kröfuhörðustu markaði heims. Þá leggjum við einnig ríka áherslu á fræðslu og endurmenntun starfsfólks okkar. Eskja hefur frá fyrstu tíð haft það að leiðarljósi að umgangast fiskimiðin umhverfis Ísland af ábyrgð og virðingu, í samræmi við lög og reglur og að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar.

Baadermaður óskast í viðhaldsteymi uppsjávarvinnslu Eskju
Eskja leitar að öflugum og metnaðarfullum Baadermanni til starfa í uppsjávarvinnslu félagsins á Eskifirði. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf í framsækinni matvælaframleiðslu þar sem lögð er áhersla á gæði, fagmennsku og gott samstarf.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarvinnslu
📞 897 7222 | ✉️ [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur, stillingar og daglegt eftirlit með Baader‑vélum
- Viðhald og bilanagreining
- Samvinna við viðhalds- og framleiðsluteymi
- Eftirlit með vinnsluferlum og gæðum afurða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af Baader‑vélum er kostur
- Reynsla af störfum í fiskvinnslu er kostur
- Nákvæmni og vandvirkni
- Góð samskiptafærni og hæfni til teymisvinnu
- Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Starfsmaður í pökkun
Lýsi

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.

Head of Warehouses - Alvotech
Alvotech hf

Starfsmaður í Framleiðslu
Bláa Lónið

Starfsmaður á renniverkstæði / CNC
Embla Medical | Össur

Manufacturing Cleaning Specialist
Alvotech hf

We are seeking new cooker to join our team
Flame Restaurant

Framleiðsla - Precast Production Workers - Akranes
BM Vallá

Steypuhrærari í Þorlákshöfn
Steypustöðin