Evolv
Evolv er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og smíði á sjálfvirkum lausnum. Hjá Evolv er notast við ýmsa tækni þegar kemur að smíði sjálfvirkra lausna, þar á meðal er Evolv með mikla sérþekkingu á sviði stafræns vinnuafls (e. Robotic Process Automation).
Automation developer
Við hjá Evolv leitum að starfskrafti sem er tilbúinn að ganga til liðs við okkar frábæra teymi sem hjálpar stærstu fyrirtækjum landsins að sjálfvirknivæða handvirka og tímafreka ferla. Starfið felst meðal annars í því að greina, smíða og innleiða hugbúnaðarlausnir sem nýtast viðskiptavinum Evolv í sinni sjálfvirknivegferð.
Evolv býður viðskiptavinum sínum upp á framúrskarandi þjónustu sem byggir á trausti, fagmennsku og skilningi á virði þeirra sjálfvirknilausna sem Evolv þróar í samvinnu við viðskiptavini.
Drífandi einstaklingar í leit að starfi sem býður upp á fjölbreytt verkefni, ábyrgð og tækifæri til að hafa áhrif á hverjum degi eru hvattir til að sækja um. Ef eftirfarandi á við um þig þá skaltu sækja um
- Hef áhuga á því að fá innsýn inn í fjölbreyttan rekstur fyrirtækja á Íslandi
- Vil fá tækifæri til þess að leysa vandamál frá upphafi til enda
- Vil fá tækifæri til þess að taka ábyrgð og sýna frumkvæði af alvöru
- Hef áhuga á að sjálfvirknivæða handvirka ferla
- Hef gagnrýna hugsun og metnað fyrir því að gera hlutina betur, ekki gera hlutina á einhvern ákveðinn hátt vegna þess að þeir hafa alltaf verið gerðir þannig.
- Hef samskiptahæfni sem nýtist til þjónustu við viðskiptavini, sama hvort það sé til þess að greina tækifæri, innleiða lausnir eða veita notendaaðstoð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við fjölbreytta viðskiptavini Evolv
- Ráðgjöf og þjónusta við að sjálfvirknivæða handvirka og tímafreka ferla.
- Taka þátt í að þróa, útfæra, forrita og prófa sjálfvirkar lausnir
- Vera hluti af framúrskarandi teymi Evolv og leggja þitt af mörkum við spennandi verkefni sem leggja áherslu á nána teymisvinnu.
- Vera forvitinn í starfi, sífellt að leitast við að auka færni þína og þekkingu og fylgjast með þróun og tækninýjungum á þínu sviði
- Finna bestu lausn við vandamálum ekki einungis auðveldustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (B.Sc. eða M.Sc.) á sviði verkfræði, tölvunarfræði, stærðfræði eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla í forritun, til dæmis í Python og SQL.
- Þekking og reynsla af UiPath eða öðrum RPA tólum er kostur.
- Þekking á vefþjónustum og API samþættingum er kostur.
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að vaxa í starfi og vera partur af framúrskarandi teymi spennandi hugbúnaðarfyrirtækis í miklum vexti
- Hádegismatur, drykkir o.fl. á skrifstofu
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt28. nóvember 2024
Umsóknarfrestur31. desember 2024
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFrumkvæðiInnleiðing ferlaPythonSQLTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Hugbúnaðarsérfræðingur
Veritas
Deildarstjóri á gæðatrygginga-og gæðaeftirlitsdeild
Coripharma ehf.
Sérfræðingur í umsjónardeild á Suðursvæði
Vegagerðin
Power Platform Sérfræðingur
ST2
Sérfræðingur Flugvallarþjónustu
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Forritari/Hugbúnaðarsérfræðingur - Akureyri
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Sérfræðingur í gagnavísindum og hermun aflkerfa
Veitur
Verkefnalóðs
Landsnet hf.
Verkefnastjóri framkvæmda
Landsnet hf.
Forritari í Microsoft .Net C#
Eignaumsjón hf
Notendaþjónusta − hugbúnaður, útstöðvar, kennsla o.fl.
Eignaumsjón hf
Forritari Microsoft SQL gagnagrunns
Eignaumsjón hf