

Þelamerkurskóli auglýsir laus störf
Við Þelamerkurskóla eru fjölbreytt störf laus til umsóknar.
Í Þelamerkurskóla er rík áhersla lögð á að skapa aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst samvinnu, sveigjanleika og lausnamiðaðrar hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og er skólinn er heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á útikennslu, rafræna kennsluhætti og skapandi starf.
Lausar stöður:
Skólaliði sem sinnir þrifum, gæslu og aðstoð í mötuneyti
Stuðningsfulltrúi og starfsmaður í frístund
Deildarstjóri í stjórnendateymi ásamt kennslu á unglingastigi
Umsjónarkennarar á yngsta-, mið- og unglingastigi
Kennari í hönnun og smíðum - Kennari í textílmennt
Sjá nánar á heimasíðu Hörgársveitar:
https://www.horgarsveit.is/is/mannlif/frettir-og-vidburdir/frettir/atvinna-thelamerkurskoli-7
Íslenska










