atNorth
atNorth
atNorth

Árangursmiðaður þjónustustjóri

atNorth er að stækka á Akureyri og leitar því að brautryðjendum til að starfa í heimi gervigreindar og gagnavera. Við höfum sett okkur markmið um að vera leiðandi í uppbyggingu innviða fyrir gervigreind á alþjóðavísu og nú setjum við saman teymi sem mun sjá um að smíða þá innviði.

atNorth óskar eftir árangursmiðaðan þjónustustjóra fyrir gagnaverið okkar á Akureyri til að tryggja farsælar innleiðingar nýrra viðskiptavina og ánægjulega upplifun með gagnaversþjónustu atNorth.

Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Hlutverkið hentar öllum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú ert að fara veita viðskiptavinum sem nýta gagnaver okkar á Akureyri þá aðstoð og þjónustu sem þau þurfa hverju sinni, innleiða nýja viðskiptavini og þú verður í beinum samskiptum við þá viðskiptavini. Þetta eru þín helstu verkefni:

  • Innleiðing nýrra viðskiptavina og aðstoð við núverandi viðskiptavini
  • Skipulag og framkvæmd prófanna og afhendinga
  • Samhæfing reksturs og afhendingar
  • Skjölun fyrir uppsetningu lausna og búnaðar
  • Staðfesting uppsetningar og afhendinga
Menntunar- og hæfniskröfur

Þú þarft að hafa reynslu af því að veita fólki aðstoð, áhuga á verkefnastýringu, skjölunarhæfileika og ríka þjónustulund.

  • Þekkingu af þjónustustýringu
  • Uppbygging teyma og að leiða teymi
  • Reynsla af verkefnastjórnun og gagnaverum eru kostir
  • Samviskusemi, stundvísi og drifkraftur
  • Rík þjónustulund, jákvæðni og samskiptahæfni
  • Góð enskukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði við störf
Fríðindi í starfi

atNorth er leiðandi norrænt gagnaversinnviðafyrirtæki sem býður upp á sjálfbæra, hagkvæma, skalanlega ofurtölvu-innviðaþjónustu og hýsingu víðsvegar um Ísland, Svíþjóð, Finnland og erum að opna í Danmörku. Sjálfbærni á sinn sess í grunnstefnu atNorth og keyra öll okkar gagnaver á endurnýjanlegum orkugjöfum sem falla vel að hringkerfum heimsins. Öll gagnaverin okkar nýta sér framúrstefnulega hönnun, hagnýta orkunýtingu og snjalla rekstrarstjórnun til að skapa innviði sem skila virði til lengri tíma og sveigjanlegar hýsingarlausnir.

atNorth er samheldin hópur sem tekur árangursmiðaðar ákvarðanir til að byggja upp sinn vinnustað. atNorth er ábyrgur vinnustaður og býður upp á fjölskylduvænt umhverfi. Hjá okkur færðu góð vinnutæki og aðbúnað til að geta unnið þína vinnu.

Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru:

  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem þéttir hópinn
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast til gagnavera okkar á Norðurlöndum
Auglýsing stofnuð28. febrúar 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðarvellir 1, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar