

Apótekarinn Vestmannaeyjum - Framtíðarstarf
Apótekarinn leitar að þjónustulunduðum starfsmanni til þess að sinna þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini fyrirtækisins í Vestmannaeyjum.
Um framtíðarstarf er að ræða
Um hlutastarf er að ræða, með vinnutíma kl.9-12 tvo daga í viku og 13-18 þrjá daga í viku. Viðkomandi þarf að geta unnið á laugardögum af og til.
Starfssvið:
-Ráðgjöf til viðskiptavina
-Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur:
-Reynsla af starfi í apóteki er kostur
-Lyfjatæknimenntun kostur
-Mikil þjónustulund og jákvæðni
-Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
-Lágmarksaldur er 20 ára
Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.
Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.











