Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Alþjóðleg tækifæri - viðskiptamiðaður verkefnastjóri

Landsvirkjun þróar og fjárfestir í endurnýjanlegri raforkuvinnslu á erlendri grundu. Með því viljum við flytja út og efla íslenskt hugvit, auka kraft okkar í baráttunni við loftslagsbreytingar og skapa verðmæti fyrir íslensku þjóðina. Norðurslóðir eru í forgrunni hjá okkur og þar eru mörg áhugaverð verkefni í undirbúningi.

Við leitum að verkefnastjóra til að stýra verkefnaþróun Landsvirkjunar erlendis, með áherslu á viðskiptalega hlið verkefna. Starfið felur m.a. í sér umsjón samstarfs við hlutaðeigandi aðila, mat og þróun viðskiptatækifæra, gerð viðskiptaáætlana og samningagerð. Starfið er í verkefnaþróunardeild á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar, en verkefni eru almennt unnin í nánu samstarfi við auðlinda- og önnur svið Landsvirkjunar, erlend orkufyrirtæki og aðra aðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • reynsla af viðskiptaþróun, kostur ef alþjóðlegri
  • færni í og ánægja af mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samstarfi við ólíka aðila
  • skipulagsfærni og lausnamiðað hugarfar
  • hæfni við að tjá sig og setja fram upplýsingar á skýran hátt á ensku 
Auglýsing birt1. nóvember 2024
Umsóknarfrestur10. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AlþjóðaviðskiptiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar