Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Alþjóðleg tækifæri - tæknimiðaður verkefnastjóri

Landsvirkjun þróar og fjárfestir í endurnýjanlegri raforkuvinnslu á erlendri grundu. Með því viljum við flytja út og efla íslenskt hugvit, auka kraft okkar í baráttunni við loftslagsbreytingar og skapa verðmæti fyrir íslensku þjóðina. Norðurslóðir eru í forgrunni hjá okkur og þar eru mörg áhugaverð verkefni í undirbúningi.

Við leitum að verkefnastjóra til að stýra verkefnaþróun Landsvirkjunar erlendis, með áherslu á tæknilega hlið verkefna. Starfið felur m.a. í sér tæknilega rýni og aðkomu að fýsileikagreiningum, hönnun, verkefnastjórnun og rannsóknum vegna þróunar, byggingar eða rekstrar virkjana. Starfið er í verkefnaþróunardeild á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar, en verkefni eru almennt unnin í nánu samstarfi við auðlinda- og önnur svið Landsvirkjunar, erlend orkufyrirtæki og aðra aðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem verkfræði
  • reynsla af verkefnastjórnun, kostur ef hún er tengd verkefnaþróun
  • færni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samstarfi við ólíka aðila 
  • skipulagshæfni og  lausnamiðað hugarfar 
  • hæfni við að tjá sig og setja fram upplýsingar á skýran hátt á ensku 
Auglýsing birt1. nóvember 2024
Umsóknarfrestur10. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar